Verkefnastjórn

Ráðgjafar Admon hafa mikla reynslu í stýringu stórra verkefna svo og eftirliti með slíkum verkefnum.  Á það jafnt við hugbúnaðarverkefni, innleiðingu stórra kerfa, flutning tölvusala, uppsetning nýrra fyrirtækja eða ferla. Reynsla ráðgjafa Admon sem stjórnendur nýtist sérstaklega vel í þessari vinnu því hún snýst að stórum hluta um stjórn á fólki, markmiðasetningu og eftirlit með að markmiðum sé náð, svo og viðbrögð við frávikum.
 
Áralöng reynsla ráðgjafa Admon tryggir að þeir hafa þekkingu og reynslu til að bregðast við frávikum og koma verkerfnum í réttan farveg á ný. Sum verkefna Admon hafa einmitt snúist um að taka að sér verkefni sem komin eru út af sporinu og ná þeim í réttan farveg á ný.
 
Admon byggir sína verkerfnastjórn á Prince2 aðferðafræðinni og notar hana í allri sinni vinnu að meira eða minna leyti, allt eftir stærð verkefna.