Um Admon

Admon er öflugt ráðgjafarfyrirtæki í upplýsingatækni sem byggir á áratuga reynslu ráðgjafa sinna. Fyrirtækið er stofnað um mitt ár 2002 og hefur þegar haslað sér völl sem helsta ráðgjafarfyrirtæki landsins í stjórnun upplýsingatækni.

Admon veitir ráðgjöf í stefnumótun og arkitektúr upplýsingakerfa. Ráðgjöfin byggir á þekkingu, reynslu og óhlutdrægu mati á lausnum hverju sinni. Áherslan er á að upplýsingatæknin styðji við viðskiptaleg markmið viðskiptavina.
 
Einnig hefur Admon tekið að sér verkefnastjórnun í stórum upplýsingatækniverkefnum þar sem krafist er víðtækrar reynslu og þekkingar.
 
Admon hefur einnig víðtæka reynslu í öryggismálum og hefur unnið mörg verkefni á sviði vottunar á stjórnkerfum í upplýsingatækni.
 
Admon byggir sína ráðgjöf á eigin starfsmönnum, en nýtir sér einnig víðtækt net samstarfsaðila í ákveðnum verkefnum til að bæta við reynslu og þekkingu þar sem við á. Í lok árs 2011 hafði Admon lokið vinnu við yfir 160 ráðgjafarverkefni. Reynsla starfsmanna Admon í ráðgjöf er því orðin veruleg og er einstök á íslenskum ráðgjafamarkaði.
 
Eigendur Admon eru, Arnaldur F. Axfjörð, Svavar G. Svavarsson og Halldór Pétursson.
 
Stjórn Admon skipa:
  • Arnaldur Axfjörð, formaður
  • Halldór Pétursson
  • Svava Bjarnadóttir
  • Svavar G. Svavarsson
Framkvæmdastjóri Admon er Halldór Pétursson (hp@admon.is)