Rafræn viðskipti

 

Admon hefur sennilega mesta reynslu allra ráðgjafafyrirtækja landsins á sviði rafrænna viðskipta. Einnig hafa ráðgjafar Admon starfað í Evrópusamstarfi við skilgreiningu staðla og lausna í rafrænum samskiptum. Þekking og reynsla Admon er margþætt:

Rafræn skilríki og rafræn miðlun

Admon sá um verkefnastjórn við innleiðingu rafrænna skilríkja fyrir ríkið og bankana. Í þessu verkerfni voru byggðir upp PKI innviðir fyrir Ísland sem uppfylla kröfur ESB varðandi beitingu rafrænna skilríkja. Þetta er metnaðarfullt verkefni sem fylgst er með af athygli um alla Evrópu. Admon hefur einnig verið helsti ráðgjafi í skilgreiningu þeirra krafna sem gera þarf til búnaðar og reksturs kerfa sem tilheyra rafrænum skilríkjum og ráðgjafar Admon hafa setið í evrópskum samstarfshópum á þessu sviði.
 

Rafræn innkaup

Admon hefur verið ráðgjafi ríkisins og ríkisstofnana við skilgreingar á stefnu í rafrænum innkaupum. Þetta eru metnaðarfull verkerfni þar sem ríkið er að beita sér fyrir að ná að gera innkaup sjálfvirk og pappírslaus. Þetta mun skila sér í miklu hagræði fyrir íslenskt samfélag er fram í sækir.
 

Rafrænt markaðstorg

Admon hefur mikla þekkingu og reynslu í rafrænum markaðstorgum og þeirri tækni og ferlum sem þarf þarf að beita til að ná árangri við uppsetningu og rekstur þeirra. Admon hefur verið í ráðgjöf fyrir bæði ríkið og ýmsa aðra aðila í þessum málum en þetta er mikið hagsmunamál bæði kaupenda og seljenda.  Hér hefur ríkið leiðandi hlutverki að gegna og hefur Admon unnið mikið fyrir hið opinbera í þessum málum.