Admon er öflugt ráðgjafarfyrirtæki í upplýsingatækni sem byggir á áratuga reynslu ráðgjafa sinna. Fyrirtækið er stofnað um mitt ár 2002 og hefur þegar haslað sér völl sem helsta ráðgjafarfyrirtæki landsins í stjórnun upplýsingatækni.
Admon veitir ráðgjöf í stefnumótun og arkitektúr upplýsingakerfa. Ráðgjöfin byggir á þekkingu, reynslu og óhlutdrægu mati á lausnum hverju sinni. Áherslan er á að upplýsingatæknin styðji við viðskiptaleg markmið viðskiptavina.
Einnig hefur Admon tekið að sér verkefnastjórnun í stórum upplýsingatækniverkefnum þar sem krafist er víðtækrar reynslu og þekkingar.
Admon hefur einnig víðtæka reynslu í öryggismálum og hefur unnið mörg verkefni á sviði vottunar á stjórnkerfum í upplýsingatækni.
Admon byggir sína vinna á eigin starfsmönnum, en nýtir sér einnig víðtækt net samstarfsaðila í ákveðnum verkefnum til að bæta við reynslu og þekkingu þar sem við á. Vorið 2007 hóf Admon vinnu við sitt hundraðasta ráðgjafarverkefni. Reynsla starfsmanna Admon í ráðgjöf er því orðin veruleg og er einstök á íslenskum ráðgjafamarkaði.
Eigendur Admon eru, Arnaldur F. Axfjörð, Svavar G. Svavarsson, Halldór Pétursson og Rúnar Karlsson.
Stjórn Admon skipa:
Framkvæmdastjóri Admon er Halldór Pétursson (hp@admon.is)