Gagnageymslur
Ráðgjafar Admon hafa undanfarin ár haldið marga fyrirlestra um netþjónabú, eða gagnageymslur eins og Admon vill kalla þessa tegund risastórra tölvusala. Ráðgjafar Admon hafa komið að byggingu á annars tugs tölvusala og hafa unnið nokkur ráðgjafarverkefni í undirbúningi að smíði gagnageymsla. Hér má finna nýjasta fyrirlesturinn frá Admon sem haldinn var á ráðstefnu Skýrslutæknifélagsins þann 6.september 2007.
Rafræn skilríki
Ráðgjafar Admon hafa unnið undanfarin 4 ár að uppbyggingu á rafrænum skilríkjum á Íslandi. Admon ber ábyrgð á verkefnisstjórn og ráðgjöf í samstarfsverkefni ríkis, banka og sparisjóða þar sem unnið er að því að setja rafræn skilríki á öll debetkort innan tveggja ára. Þar með hefst almenn notkun á rafrænum skilríkjum á Íslandi á næstu misserum. Hér er grein um rafræn skilríki sem gerð var í kringum kynningu skilríkjanna á Tækni og Vit ráðstefnunni 2007.