Áherslur

Admon leggur áherslu á nokkur atriði í sinni þekkingaruppbyggingu:

Verkefnastjórnun og verkeftirlit er sívaxandi þáttur í starfi Admon. Unnið er eftir Prince2 aðferðafræðinni við verkefnastjórnun og hafa starfsmenn fyrirtækisins vottað sig sem slíka.

Annað stórt áherslusvið eru rafræn viðskipti. Bæði er þar um að ræða rafræn innkaup en ekki síður rafræn skilríki. Admon hefur verið leiðandi ráðgjafi á markaðnum á báðum þessum sviðum undanfarin ár. Admon stýrir í dag innleiðingu ríkisins og bankana rafrænum skilríkjum.

Þriðja sviðið er öryggisstjórnun. Admon hefur unnið að öryggisvottun margra fyrirtækja, þar með talin nokkur stærstu fyrirtæki landsins. Starfsmenn Admon hafa áralanga reynslu af þess konar ráðgjöf og verkefnastýringu.

Fjórða sviðið snýr að arkitektúr og rekstri upplýsingakerfa. Milkil reynsla er í gerð útboðsgagna, samninga, í vali á búnaði, hönnun kerfarýma og rekstri á upplýsingatæknikerfum. Fjölmörg verkerfni hafa verið unnin á þessu sviði og iðulega fylgir með stefnumótun í upplýsingatækni sem undanfari aðgerða. Sem hluta af þessari vinnu hefur verið byggð upp veruleg þekking á ferlum, þ.á.m. á ITIL.

Fimmta sviðið snýr að greiningum á upplýsingatæknimarkaðinum. Admon hefur unnið stór greiningarverkerfni sem notuð hafa verið sem grunnur að viðskiptalíkönum við þróun nýrra lausna í upplýsingatækni. Þessu hefur fylgt ráðgjöf við skipulag og ferlagreiningar.

 

Admon hefur byggt upp verulega þekkingu á fjarskiptamarkaðinum gegnum sína vinnu. Einnig er til staðar veruleg þekking á UT iðnaðinum, fjármálageiranum svo og á opinbera geiranum sem skapast hefur bæði í gegnum fyrri störf og ráðgjafarverkefni.